Orð verða til – orðagjörningur
Vinir Árnastofnunar stóðu fyrir orðagjörningi, Orð verða til, á vegg Sjávarútvegshússins við Skúlagötu 4. Þar birtust íslensk orð og nýyrði yfir fyrirbæri sem tengjast nýrri tækni þegar rökkva tók.
Gjörningurinn var skipulagður í tilefni
af Vetrarhátíð í Reykjavík og UT-messunni í Hörpu og stóð dagana 2.—4 febrúar
sl. Á vegg Sjávarútvegshússins, sem hýsir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
og Hafrannsóknastofnuna, birtust nýyrði á borð við hlaðvarp (e. podcast),
sprettigluggi (e. pop-up) og reitamerki (e. QR code).
Ágústa Þorbergsdóttir, sérfræðingur á málræktarsviði Árnastofnunar, setti listann saman.
Hér að neðan má sjá upptöku frá gjörningnum. Myndbandið fór sem faraldur um netið og endaði m.a. í frétt í erlendum miðli um stöðu íslenskrar tungu á tölvuöld.